Létt og vönduð ungbarnasæng frá Georg Jensen Damask, fyllt með evrópskum hvítum gæsadún í hæsta gæðaflokki. Sængin er hólfaskipt svo dúnninn haldist á sínum stað og veiti jafna og þétta einangrun þegar barnið sefur. Ytra byrði er Percale-ofið úr mjúku bómullargarni sem gefur slétta áferð. Þyngd um 72 grömm. Sængin kemur í fallegum gjafapoka.
Oeko-Tex 100 vottun fyrir strangar kröfur um umhverfisvernd. Vottun um að varan innihaldi engin óholl eða skaðleg efni.
Downpass vottun tryggir að dúnn og fiður hafi verið tínd á ábyrgan hátt og séu hluti af rekanlegri keðju.
Nomite vottun fyrir rykofnæmi.
Sængina má þvo við 60°C og setja í þurrkara.
21.300kr.
Mánudaga til föstudaga
kl. 11-17
Laugardaga
Opið 11-14 fram að jólum
Sími: 5811400
Copyright © 2023 Verona I KASA vefhönnun