Pernilla 69 frá DUX er klassískur hægindastóll hannaður árið 1944. Sænski hönnuðurinn, Bruno Mathsson, fékk innblástur að stólnum eftir að hann settist í snjóskafl. Sterkt form, þægindi og falleg smáatriði einkenna stólinn sem er smíðaður úr pressuðum beykivið.
Pernilla 69 fæst í mörgum litum og ýmsum tauáklæðum eða leðri. Hægt er að fá fótskemil í stíl við stólinn. Eingöngu eru notuð fyrsta flokks efni í öllum verðflokkum. DUX velur af kostgæfni leður- og tauáklæði sem eru vönduð, endast lengi og eru framleidd á sjálfbæran hátt.
Þú getur fengið verðtilboð í Pernilla 69 hægindastól sem er sérsniðinn að þínum draumum með því að senda fyrirspurn á verona@verona.is eða líta við í verslun okkar Verona í Ármúla 17.
Hér má sjá nokkrar útgáfur af Pernilla 69 heilklæddum leðri.
Verð frá: 713.000 kr.
Þessi vara er sérpöntun.
Mánudaga til föstudaga
kl. 11-17
Laugardaga
Opið 11-14 fram að jólum
Sími: 5811400
Copyright © 2023 Verona I KASA vefhönnun