Jetson hægindastóllinn frá DUX er eitt af kennimerkjum sænskrar húsgagnahönnunar. Bruno Mathsson vann að hönnun Jetson stólsins í þrjú ár og afhjúpaði á sýningu í Nordiska Galleriet í Stokkhólmi árið 1969. Stóllinn er á snúningsfæti og sjálfvirkur búnaður hans tryggir að stóllinn snýst alltaf aftur í upphafsstöðu. Jetson hægindastóllinn fæst í mörgum litum og ýmsum tauáklæðum eða leðri. Eingöngu eru notuð fyrsta flokks efni í öllum verðflokkum. DUX velur af kostgæfni leður- og tauáklæði sem eru vönduð, endast lengi og eru framleidd á sjálfbæran hátt. Hægt er að fá stólinn með svörtum möttum fæti eða króm fæti.
Hér fyrir neðan má sjá stólinn heilklæddan svörtu leðri.
Þú getur fengið verðtilboð í Jetson hægindastól sem er sérsniðinn að þínum draumum með því að senda fyrirspurn á verona@verona.is eða líta við í verslun okkar Verona í Ármúla 17.
Verð frá 825.000 kr.
Mánudaga til föstudaga
kl. 11-17
Laugardaga
Opið 11-14 fram að jólum
Sími: 5811400
Copyright © 2023 Verona I KASA vefhönnun